Umfangsmikil leit að tveimur vélsleðamönnum á Langjökli í nótt - Þeir fundust heilir á húfi
Áhöfn Lífar, björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar, var kölluð út í framhaldinu. Hún fór í loftið kl. 1:43. Einnig var óskað eftir aðstoð flugvélar Flugmálastjórnar, TF-FMS, og fór hún af stað kl. 3:47. Flugmálastjórnarvélin var bæði notuð við leit og sem endurvarpi við fjarskipti á leitarsvæðinu. Líf kom aftur til Reykjavíkur kl. 4:20 til að taka eldsneyti og var skipt um einn mann í áhöfn. Síðan hélt þyrlan aftur til leitar.
Um kl. 5:30 var óskað eftir þyrlu Varnarliðsins til aðstoðar. Er áhöfnin hafði kynnt sér aðstæður og fengið úthlutað leitarsvæði, fór þyrlan í loftið eða kl. 7 í morgun.
Kl. 7:08 tilkynnti áhöfn björgunarþyrlunnar Lífar að hún hefði fundið tvo yfirgefna vélsleða í Hallmundarhrauni 3.3 mílur norðan við Eiríksjökul. Við það breyttist leitarsvæðið talsvert og fann þyrla Varnarliðsins mennina um tíuleytið 4 mílur austur af staðnum þar sem sleðarnir fundust. Þeir voru heilir á húfi.
Líf, björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar, var þá komin til Reykjavíkur og önnur áhöfn komin út á flugvöll rétt í þann veginn að fara í loftið á björgunarþyrlunni Sif.
Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur/upplýsingaftr.

Úr myndasafni. Líf á Langjökli.
