Metfjöldi á sjó - útköll á sjó og landi

  • _IB_6324

Mánudagur 11. júlí 2011

Mikið annríki er nú í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar. Allt stefnir í metfjölda skipa og báta á sjó, bátur er vélarvana á Breiðafirði og þyrla hefur verið kölluð út vegna alvarlegra veikinda á Kirkjubæjarklaustri.

Samtals eru nú 962 bátar í fjareftirliti hjá Landhelgisgæslunni og fylgir því mikið annríki fyrir varðstjóra. Aðstoðarbeiðni barst um kl. 09:00 frá fiskibát með þrjá menn um borð sem er með veiðarfæri í skrúfunni við Svefneyjar, suður af Hvallátrum. Ekki er talin hætta á ferðum. Gott veður er á svæðinu en svartaþoka. Sett var út akkeri og bíða þeir nú eftir aðstoð. Búið er að hafa samband við nærstadda báta og sjóbjörgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á svæðinu en vonast er til að aðstoð berist sem fyrst en um vandfarið svæði er að ræða vegna skerja og grynninga.

Á sama tíma barst beiðni um aðstoð þyrlu frá lækni á Kirkjubæjarklaustri vegna alvarlegra veikinda. Þyrluáhöfn var samstundis kölluð út og reiknað er með að þyrlan lendi á Kirkjubæjarklaustri um kl. 10:15.