Tundurdufl í togara - Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar flutt með björgunarþyrlunni Líf austur fyrir land
Föstudagur 11. nóvember 2005.
Tveir menn úr sprengjusveit Landhelgisgæslunnar héldu um þrjúleytið í leiðangur með björgunarþyrlunni Líf til að
Skipstjóri Þórunnar Sveinsdóttur hafði fyrst samband við varðskipið Tý sem var í grenndinni og óskaði eftir aðstoð vegna torkennilegs hlutar sem komið hafði upp með vörpu togarans. Taldi hann að e.t.v. væri um að ræða tundurdufl eða hlustunardufl. Í framhaldi af því fóru varðskipsmenn frá Tý um borð í Þórunni og staðfestu í samráði við sprengjusveit Landhelgisgæslunnar að um tundurdufl væri að ræða, nánar tiltekið sprengiefnistunnu úr tundurdufli ásamt forsprengju og hvellhettu.
Talið var nauðsynlegt að fá sprengjusérfræðing til aðstoðar án tafar og eru tveir menn úr sprengjusveit Landhelgisgæslunnar á leiðinni með björgunarþyrlunni Líf austur fyrir land þar sem þeir munu síga niður í varðskipið Tý og fara þaðan um borð í Þórunni Sveinsdóttur.
Skipin stefna í átt til Reyðarfjarðar.
Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur/upplýsingaftr.