Flugvélin Sif komin til landsins eftir gæslu- og eftirlitsverkefni fyrir Frontex

  • SIF_MG_1474

Föstudagur 1. nóvember 2013

Sif, flugvél Landhelgisgæslunnar kom til landsins síðdegis eftir að hafa verið við gæslu- og eftirlit fyrir Landamæraeftirlitsstofnun Evrópusambandsins, Frontex frá byrjun október.

Flugvélin hefur skilað miklum árangri á tímabilinu og hefur áhöfn flugvélarinnar komið auga á flóttamannabáta með á annað hundrað manns innanborðs. Var þeim bjargað um borð í skip spænsku strandgæslunnar eða björgunarskip SASEMAR (Salvamento Marítimo). Einnig hefur spænski flotinn komið til aðstoðar þegar herskip þeirra voru nálægustu björgunareiningarnar. Í eftirlitsflugi Sifjar hefur áhöfnin einnig komið auga á grunsamlega báta hafa verið tilkynntir til stjórnstöðvar vegna gruns um fíkniefnasmygl.

Upplýsingar frá flugvélinni eru sendar til stjórnstöðvanna og allar ákvarðanir varðandi eftirlitið eru teknar í samráði við þær. Frá byrjun aðgerðarinnar í vor hefur u.þ.b. 3100 flóttamönnum verið bjargað í leitar- og björgunaraðgerðum Frontex á sjó.

Flugvélin hentar afar vel fyrir þessi verkefni enda safnar eftirlitsbúnaður hennar margvíslegum upplýsingum á skömmum tíma.  Mikil ánægja hefur verið með störf starfsmanna Landhelgisgæslunnar en fimm manna áhöfn fylgir flugvélinni auk flugvirkja og starfsmanns í stjórnstöð Frontex.

Myndir sem flugdeild LHG tók við komu Sifjar í dag.



Áhöfn Sifjar við komuna til Reykjavíkur.



Georg Kr. Lárusson, fostjóri Landhelgisgæslunnar tekur á móti áhöfninni.

Myndir sem voru teknar með eftirlitsbúnaði Sifjar.