Varðskipið Þór enn við slökkvistörf - staðan svipuð og fyrr í dag
Varðskipið Þór er enn við slökkvistörf vestur af Faxaflóa, vegna elds um borð í flutningaskipinu Fernanda. Um borð í Þór eru sex slökkviliðsmenn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Þá fór þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNA á vettvang í dag til að aðstoða við að meta aðstæður og koma búnaði til björgunaraðila.
Staðan er svipuð og fyrr í dag. Enn er leitast við að draga úr hita í skrokki skipsins og sprautar varðskipið Þór á skipið eftir því sem aðstæður leyfa. Aðgerðir miðast sem fyrr við að tryggja öryggi og draga úr hættu á mengun.
Verður aðgerðum haldið áfram og staðan endurmetin ef breyting verður á.
Á meðfylgjandi myndum sem teknar voru frá varðskipinu Þór í nótt og í dag má sjá þegar varðskipið sprautar yfir flutningaskipið Fernanda.