Landhelgisgæslan fær nýja hafnaraðstöðu á Faxagarði - Varðskipið Týr flutti nýtt varðskýli til Reykjavíkurhafnar í dag

Miðvikudagur 8. september 2004.

Varðskipið Týr flutti nýtt varðskýli Landhelgisgæslunnar frá Keflavíkurhöfn til Reykjavíkur í dag.  Landhelgisgæslan fær nýja hafnaraðstöðu á Faxagarði þar sem varðskýlinu var komið fyrir.

Undanfarin ár hefur verið rætt um að færa þurfi hafnaraðstöðu Landhelgisgæslunnar frá Ingólfsgarði því hún hefur ekki þótt henta nægilega vel fyrir varðskipin.  Eftir viðræður við Reykjavíkurhöfn bauð hafnarstjórinn Landhelgisgæslunni nýja hafnaraðstöðu á Faxagarði.  Í framhaldi af því var farið að kanna möguleika á að kaupa nýtt varðskýli fyrir Landhelgisgæsluna því að gamla varðskýlið á Ingólfsgarði er komið til ára sinna og uppfyllir ekki lengur kröfur sem gerðar eru til vinnuaðstöðu. 

Dómsmálaráðuneytið samþykkti í apríl á þessu ári að Landhelgisgæslan fjármagnaði nýtt varðskýli með fé úr Landhelgissjóði.  Í framhaldi af því var smíði varðskýlisins boðin út.  Tilboð voru opnuð í júní og var gengið til samninga við Vélsmiðjuna Eldafl sem átti lægsta tilboðið. 

Varðskýlið var smíðað í Njarðvík og flutti varðskipið Týr það til Reykjavíkurhafnar í dag.  Vel gekk að koma því fyrir á varanlegan stað.  Fyrirhugað er að varðskýlið og nýja hafnaraðstaðan verði tekin í notkun um mánaðarmótin september-október næstkomandi.  Hafrannsóknarstofnun hefur einnig hafnaraðstöðu fyrir skip sín á Faxagarði og mun samnýta varðskýlið með Landhelgisgæslunni.

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.

Mynd Steinar Clausen:  Varðskipið Týr á leið út úr Keflavíkurhöfn með varðskýlið á dekkinu.

Mynd Steinar Clausen: Thorben Lund yfirstýrimaður og Sigurður Steinar Ketilsson skipherra við komuna til Reykjavíkur.

Mynd DS: Verið að gera húsið klárt fyrir flutning.

Mynd DS: Vel gekk að hífa varðskýlið frá borði.

Mynd DS: Varðskýlið ,,að lenda" á bryggjunni og Steinar Clausen hinn ánægðasti með nýja vinnustaðinn sinn. Hafsteinn Hafsteinsson forstjóri fylgist með.