Borgarísjakar á reki úti fyrir Norðurlandi
Fimmtudagur 26. ágúst 2004.
Áhöfn TF-SYN, Fokker-flugvélar Landhelgisgæslunnar, sá nokkra borgarísjaka á reki úti fyrir Norðurlandi þegar flugvélin var í eftirlitsflugi í gær.
Jón Páll Ásgeirsson yfirstýrimaður tók meðfylgjandi mynd af jakanum sem var næstur landi en hann var skammt norður af Siglunesi. Siglufjörður er í baksýn.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.