Þyrla send til leitar vegna mannlauss báts á Helluvatni
Sunnudagur 28. september
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út kl. 20:22 í kvöld eftir að lögregla tilkynnti að mannlaus bátur hefði sést á reki á Helluvatni við Rauðhóla. Sjónarvottur hafði haft samband við lögregluna og taldi sig hafa séð 3 menn í bátnum fyrr um daginn.
TF-LÍF fór í loftið kl. 20:43 og sveimaði yfir svæðinu í u.þ.b. klukkustund en ekkert fannst. Björgunarsveitir og kafarar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins leituðu einnig en án árangurs. Talið er líklegt að báturinn hafi verið illa festur og rekið út á vatnið.
Dagmar Sigurðardóttir
upplýsingafulltrúi