Tveir skipverjar björguðust eftir að Röst SH-134 sökk út af Snæfellsnesi
Flugstjórn hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 16: 50 og tilkynnti að flugvél á norð-vesturleið hefði numið neyðarsendingar innst í Breiðafirði. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, var þegar kölluð út og Flugmálastjórn beðin að senda flugvél sína, TF-FMS, strax af stað til leitar. TF-LÍF fór í loftið kl. 17:39.
Leitarsvæðið var gríðarlega stórt í fyrstu en skömmu eftir að TF-FMS fór frá Reykjavík kl. 17:30 nam hún neyðarsendingar og gat miðað þær út. Á sama tíma námu gervihnettir sendingarnar og gáfu staðsetningar út af Snæfellsnesi. Laust fyrir kl. 18 tilkynnti TF-FMS um björgunarbát út af Svörtuloftum við Snæfellsnes. Skammt frá björgunarbátnum voru tvö loðnuskip, Sighvatur Bjarnason og grænlenska skipið Siku en TF-LÍF var skammt undan.
Áhöfn Siku bjargaði tveimur mönnum úr gúmmíbjörgunarbátnum en þeir reyndust vera skipverjar af m/b Röst SH-134 sem hafði sokkið. Mennirnir voru heilir á húfi en fleiri skipverjar höfðu ekki verið um borð í m/b Röst. Þegar ljóst var að ekkert amaði að mönnunum var þyrlu Landhelgisgæslunnar og flugvél Flugmálastjórnar snúið til Reykjavíkur .
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi
Landhelgisgæslu Íslands