Skip staðið að meintum ólöglegum veiðum á Faxaflóa
Þriðjudagur 12. nóvember 2002.
Varðskip stóð skipstjóra dragnótarbáts að meintum ólöglegum veiðum á Faxaflóa um kl. 18 í dag. Skipið var að veiða skarkola með dragnót sem var með of smáa möskva samkvæmt mælingum varðskipsmanna. Skipinu var gert að sigla til hafnar í Reykjavík þar sem lögreglan tók á móti því og gerði viðeigandi ráðstafanir.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi
Landhelgisgæslu Íslands