Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst að nýju

Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 11 til 15 mars.

  • Loftrymisgaesla_1551878624263

6.3.2019 Kl: 13:22

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að hefjast að nýju með komu flugsveitar ítalska flughersins. Alls munu allt að 140 liðsmenn ítalska flughersins taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kemur til landsins með fjórar Eurofighter Typhoon EF-2000 orrustuþotur.

Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 11 til 15 mars.

Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Flugsveitin verður staðsett á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Ráðgert er að verkefninu ljúki um miðjan apríl. Verkefnið er framkvæmt af Landhelgisgæslu Íslands í samvinnu við Isavia.