Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Íslands hefst að nýju

Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 12. nóvember til 18. nóvember.

8.11.2019 Kl 13:06

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst að nýju með komu flugsveitar breska flughersins til Íslands í næstu viku.

Allt að 140 liðsmenn breska flughersins taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kemur til landsins með fjórar Eurofighter Typhoon Orrustuþotur.

Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 12. nóvember til 18. nóvember.

Loftrýmisgæslan verður í samræmi við loftrýmisáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland og fyrirkomulagið verður með sama hætti og verið hefur.

Flugsveitin hefur aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Gert er ráð fyrir að verkefninu ljúki í byrjun desember

Landhelgisgæsla Íslands annast verkefnið í samvinnu við Isavia.