TF-SIF hóf sig til flugs á nýjan leik
Eftirlitsflugvélin TF-SIF fór í sitt fyrsta flug eftir umfangsmikla uppfærslu í liðinni viku.
22.3.2020 Kl: 10:15
TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, hóf sig til flugs á nýjan leik í liðinni viku eftir nokkurra vikna hlé. Í nóvember hófst umfangsmikil uppfærsla á eftirlitsbúnaði vélarinnar auk þess sem vélin hefur gengist undir hefðbundið viðhald.
Það var því einstaklega ánægjulegt að sjá vélina hefja sig til flugs frá Reykjavíkurflugvelli á þriðjudag en vélin gegnir afar mikilvægu og margvíslegu hlutverki í starfsemi Landhelgisgæslunnar. Ekki var annað að sjá á áhöfn vélarinnar, en hún væri í sjöunda himni með að vera komin í loftið á nýjan leik.
Á föstudag fór vélin og áhöfn hennar í sitt fyrsta formlega verkefni eftir hlé þegar F-35 vélum Norðmanna var flogið til síns heima að lokinni loftrýmisgæslu hér á landi. TF-SIF fylgdi þotunum drjúgan spöl yfir hafið áður en flugvél norska flughersins tók við fylgdarfluginu.
Sigurjón Sigurgeirsson, flugvirki, Gunnar Örn Arnarson, stýrimaður, Hreggviður Símonarson, stýrimaður auk Bartley Joshua, Neivandt Max frá L3 og Peter Larm frá Field Aviation.
TF-SIF á Reykjavíkurflugvelli á þriðjudag.TF-SIF tekur á loft.