TF-SIF stuðlaði að björgun fjölda fólks

Á þessum tæpu þremur mánuðum hafa áhafnir Sifjar stuðlað að björgun rúmlega 1300 flóttamanna á Miðjarðarhafi.

  • TF-SIF

21.10.2019 Kl: 10:46

TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, er komin heim til Íslands eftir langt og strangt úthald á vegum Frontex, Landamærastofnunar Evrópu. Vélinni var flogið til Malaga á Spáni þann 30. júlí og hafa áhafnir Landhelgisgæslunnar skipst á að sinna eftirlitinu sem fram fer á Miðjarðarhafi. Á þessum tæpu þremur mánuðum hafa áhafnir flugvélarinnar stuðlað að björgun rúmlega 1300 flóttamanna á Miðjarðarhafi. Eftirlitið hefur jafnframt leitt til þess að mikið magn fíkniefna hefur verið gert upptækt. Vélin fór í alls 42 flug á meðan verkefninu stóð.

Í byrjun ágústmánaðar urðu stýrimenn vélarinnar varir við meinta smyglara sem voru með 66 flóttamenn um borð um miðja nótt. Fólkinu var komið fyrir í hriplekum gúmmíbát og að lokum endaði hluti hópsins í sjónum. Á meðan flaug flugvél Landhelgisgæslunnar yfir bátinn, kom auga á fólkið sem var í lífshættu, og gerði spænskum yfirvöldum viðvart. 

Þyrla var send á vettvang og öllum bjargað úr háska. Ef áhöfnin á TF-SIF hefði ekki komið auga á fólkið er ljóst að illa hefði geta farið.

Um mánaðamótin hefst langþráð uppfærsla á eftirlitsbúnaði flugvélarinnar en vonir eru bundnar við að henni verði lokið um eða eftir áramótin. 

TF-SIF við Miðjarðarhaf