Loftrýmisgæsla

Flugsveitir aðildarríkja NATO annast loftrýmisgæslu hér við land

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins fer fram hér á landi samkvæmt sérstakri ákvörðun fastaráðs Atlantshafsbandalagsins frá 2007. Yfirmaður herafla NATO í Evrópu (SACEUR) hefur umsjón með henni. Er hún liður í því að gæta að nyrðri mörkum NATO og auka samstarfshæfni og viðbragðsgetu þátttökuríkja. 

Að jafnaði koma erlendar flugsveitir hingað til lands til loftrýmisgæslu þrisvar á ári. Misjafnt er frá hvaða aðildarríkjum NATO þær koma en þó er ávallt ein þessara sveita bandarísk. 

Bækistöðvar flugsveitanna eru á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og dvelja þær yfirleitt í nokkrar vikur í senn. Auk þess að sinna loftrýmisgæslunni stunda flugsveitirnar æfingar af ýmsu tagi. Fyrir flugheri margra ríkja býður Ísland upp á fjölbreyttar og framandi aðstæður. Þannig fá flugmenn landluktra ríkja, svo sem Tékklands, tækifæri til að fljúga yfir sjó, sem gerist ekki á hverju ári. 

Frá árinu 2008 hafa tíu aðildarríki Atlantshafsbandalagsins tekið þátt í loftrýmisgæslu hér við land.

Frá árinu 2018 hafa eftirtaldar þjóðir sinnt loftrýmisgæslu hér á landi:

2018

Danski flugherinn sinnti loftrýmisgæslu hér á landi í apríl með um 60 liðsmenn og fjórar F-16 orrustuþotur.

Bandaríski flugherinn sinnti loftrýmisgæslu hér í júlí með um 300 liðsmenn og fimmtán F-15 orrustuþotur.

Ítalski flugherinn sinnti loftrýmisgæslu hér á landi í september með um 140 liðsmenn og fjórar Eurofighter orrustuþotur.

2019

Ítalski flugherinn sinnti loftrýmisgæslu hér á landi frá mars með um 140 liðsmenn og fjórar Eurofighter orrustuþotur.

Bandaríski flugherinn sinnti loftrýmisgæslu hér á landi frá júlí með um 110 liðsmenn og fimm F-16 orrustuþotur.

Ítalski flugherinn sinnti loft´rymisgæslu hér á landi frá september með um 140 liðsmenn og sex F-35.

Breski flugherinn sinnti loftrýmisgæslu hér á landi frá nóvember með um 140 liðsmenn og fjórar Eurofighter orrustuþotur.

2020

Norski flugherinn sinnti loftrýmisgæslu hér á landi frá febrúar með um 30 liðsmenn og fjórar F-35 þotur.

Ítalski flugherinn sinnti loftrýmisgæslu hér á landi frá júní með um 135 liðsmenn og sex F-35 orrustuþotur. 

Bandaríski flugherinn sinnti loftrýmisgæslu hér á landi frá október með um 265 liðsmenn og fjórtán F-15 orrustuþotur. 

2021

Norski flugherinn sinnti loftrýmisgæslu hér á landi frá febrúar með um 130 liðsmenn og fjórar F-35 orrustuþotur

Bandaríski flugherinn sinnti loftrýmisgæslu hér á landi frá júlí með um 100 liðsmenn og fjórar F-15 orrustuþotur

Pólski flugherinn sinnti loftrýmisgæslu hér á landi frá ágúst með um 140 liðsmenn og fjórar F-16 orrustuþotur

2022

Portúgalski flugherinn sinnti loftrýmisgæslu hér á landi í janúar og febrúar með fjórar F-16 orrustuþotur og um 85 liðsmenn.

Ítalski flugherinn sinnti loftrýmisgæslu hér á landi í apríl með fjórar F-35 orrustuþotur og um 135 liðsmenn.

Danski flugherinn sinnti loftrýmisgæslu hér á landi í ágúst með með fjórar F-16 orrustuþotur og 70 liðsmenn.

2023

Norski flugherinn sinnti loftrýmisgæslu í janúar með með fjórar F-35 orrustuþotur og 80 liðsmenn.