
Áhöfnum varðskipanna vel tekið
10. mars 2026
Heimsóknir varðskipa Landhelgisgæslunnar vegna aldarafmælisins halda áfram. Um helgina heimsótti varðskipið Þór Flateyri...
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst um þrjúleytið í dag tilkynning um að rannsóknarskipið Dröfn hefði strandað í Þorskafirði í Barðastrandasýslu. Þá þegar kallaði stjórnstöð Landhelgisgæslunnar út þyrlu Landhelgisgæslunnar sem og björgunarsveitir á svæðinu. Engin hætta er talin á ferðum en þyrlan er nú á leið á vettvang og verður þá metið til hvaða aðgerða verður gripið.