Landhelgisgæslan og Landmælingar efna til samstarfs

14. nóvember, 2018

Landupplýsingar Landhelgisgæslunnar gerðar aðgengilegar og kortagögn endurbætt.

14.11.2018 Kl. 14:35

Georg Kr.
Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, og Eydís Líndal Finnbogadóttir, settur
forstjóri Landmælinga Íslands, skrifuðu í dag undir samstarfssamning sem felur
í sér samstarf stofnananna um aukið aðgengi almennings að rafrænum
kortaupplýsingum og endurbættum kortagögnum af strandlínu landsins.

Landmælingar
Íslands hafa á undanförnum árum eflt miðlun kortagagna sinna á vefnum og með
samstarfi við Landhelgisgæsluna er stefnt að því að gera mikilvægar
landupplýsingar, sem unnar hafa verið af sjómælingum, aðgengilegar almenningi í
landupplýsingagátt LMÍ. Að auki er stefnt að því að aðgangur að landupplýsingum
Landhelgisgæslunnar verði öllum opinn og gjaldfrjáls.

Stofnanirnar
telja einnig afar brýnt að ráðast í endurbætur á strandlínu landsins svo hægt
sé að tryggja öryggi sjófarenda, fylgjast með hækkandi sjávarborði vegna
loftslagsbreytinga og tryggja faglega skipulagsvinnu. Stórstraumsfjörumörk og
vel skilgreind strandlína eru mikilvægar upplýsingar vegna siglingaöryggis,
náttúruverndar, eigna- og stjórnsýslumarka, skipulags og náttúruvár s.s. í
formi sjávarflóða vegna loftslagsbreytinga og hækkandi sjávarstöðu. Vöktun á
sjávarstöðu byggir á grunngögnum og síritandi mælum en slíkt kerfi er aðeins að
litlu leyti virkt á Íslandi. Þá er öryggi í siglingum að stórum hluta bundið
upplýsingum í sjókortum en afar mikilvægt er að í þeim sé strandlína lands,
eyja og skerja rétt skilgreind bæði á flóði og 
stórstraumsfjöru. Auk öryggis sjófarenda skipar strandlína stóran sess í
skipulagsmálum landsins en á síðustu árum og áratugum hefur strandlína eða
stórstraumsfjöruborð oft verið notuð sem viðmiðun eða tilvísun í margskonar lög
og reglugerðir án þess að þessi lína eða mörk hafi verið mæld eða skilgreind
nánar.

Það er
einnig von stofnananna að aukið aðgengi að bættum rafrænum kortaupplýsingum
hvetji til aukinnar nýsköpunar, rannsókna og nýrra tækifæra fyrir fólkið í
landinu.

IMG_7263Eydís Líndal Finnbogadóttir, settur forstjóri Landmælinga, og Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, skrifa undir samninginn.

IMG_7271