Upplýsingar veittar um hvernig Landhelgisgæslan skipuleggur og stendur að sjómælingum.
21.11.2018 Kl: 11:04
Á dögunum barst Landhelgisgæslunni fyrirspurn frá Færeyjum þar sem
óskað var eftir upplýsingum hvernig stofnunin skipuleggur og stendur að
sjómælingum og sjókortagerð.
Það var Jónas Tór Næs lögfræðingur í Heilbrigðis- og innanríkisráðuneytinu í Færeyjum sem hafði samband við
Árna Þór Vésteinsson, deildarstjóra og sérfræðing í sjókortagerð, um miðjan ágúst
s.l. og óskaði í framhaldinu eftir því að Árni Þór kæmi til Færeyja í lok
september til fundar við fulltrúa ráðuneyta og stofnana í boði Færeyinga.
Færeyingar eru þessi misserin að vinna í
því að yfirtaka sjómælingar og sjókortagerð frá Dönum. Lögþingið í Færeyjum tók
ákvörðum um að yfirtaka málaflokkinn og er undirbúningur í fullum gangi.
Fulltrúar Færeyinga hafa þegar átt nokkra fundi með starfsmönnum Geodatastyrelsen
í Danmörku.
Árni hélt til Færeyja í lok september og átti fund með starfsmönnum. Á fundinum voru fulltrúar frá opinberum stofnunum; Landsverk,
Sjóvinnustýrið og Umhvørvisstovan auk Jónasar Tór Næs.