Fjölmörg verkefni á borði sveitarinnar
1.2.2019 Kl: 14:53
Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar hafði í nógu að snúast í
janúarmánuði. Um miðjan mánuðinn fékk sveitin tilkynningu frá stjórnstöð um að
torkennilegur hlutur hafi fundist í íbúðarhúsi á Ísafirði. Sveitin hélt
rakleiðis vestur á Ísafjörð og greindi hlutinn. Eftir ítarlega greiningu og
röntgenmyndir var það mat sprengjusérfræðinga að um meinlausa
riffilhandsprengju sem notuð var til æfinga hafi verið að ræða. Hún var sett í
járnkassa og var að lokum eytt við gamla þjóðveginn í Óshlíð.
Meinlausa riffilhandsprengjan á Ísafirði.
Í upphafi mánaðarins fór sveitin í Fagradal þar sem
torkennilegt dufl fannst í fjörunni. Sprengjusérfræðingar gengu úr skugga um að
duflið væri ekki skaðlegt og var að lokum fargað.
Duflið í Fagradal.
Þá héldu liðsmenn sveitarinnar námskeið fyrir aðra starfsmenn og einnig fóru 7 köfunaræfingar fram auk margvíslegra annarra
æfinga.
Frá æfingu sprengjusveitarinnar.