-Björgunarsveitin Ísólfur var sömuleiðis kölluð út en samband náðist að lokum við bátinn.
9.4.2019 Kl:15:19
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk tilkynningu laust eftir
hádegi um að handfærabátur væri horfinn úr ferilvöktun. Einn var um borð en
síðast var vitað um bátinn undan Stóranesi, sunnan Glettinganess. Stjórnstöð
Landhelgisgæslunnar reyndi ítrekað að ná sambandi við skipverjann í gegnum
fjarskipti og farsíma en án árangurs. Sömuleiðis hafði stjórnstöðin samband við
togara í grenndinni sem var beðinn um hafa samband við bátinn en það reyndist einnig
árangurslaust.
Því var ákveðið að kalla björgunarsveitina Ísólf frá Seyðisfirði
og björgunarskipið Árna Vilhjálmsson út til leitar sem og TF-SIF, flugvél
Landhelgisgæslunnar. Klukkan 13:51 náðist loks samband við þann sem var um borð
sem sagði að þar væri allt með kyrrum kjörum og gaf þær skýringar að sjálfvirka
staðsetningartækið hafi dottið út. Í kjölfarið var flugvélinni Sif og
björgunarskipinu Árna Vilhjálmssyni snúið við og útkallið afturkallað.