Landhelgisgæslan lítur málið alvarlegum augum
26.4.2019 Kl: 16:56
Áhöfnin á TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, hefur
undanfarna daga staðið skipverja þriggja fiskibáta að meintu ólöglegu
brottkasti. Við reglubundið eftirlit á Íslandsmiðum náðust bæði myndir og
myndbönd sem sýna hið meinta brottkast. Unnið er að rannsókn málsins en
skipstjórar fiskibátanna eiga yfir höfði sér kæru vegna athæfisins.
Landhelgisgæslan og Fiskistofa hafa tekið þessi mál til sérstakrar skoðunar að
undanförnu vegna gruns um að tiltekin skip stundi ólöglegt brottkast.
Landhelgisgæslan sinnir reglulega löggæslu á hafi úr lofti
með flugvélinni Sif sem hefur öflugan myndavélabúnað sem gerir áhöfninni um
borð færi á að sinna eftirliti með fiskveiðum úr töluverðri hæð.
Í apríl náðust umrædd myndbönd sýna hið meinta ólöglega
brottkast. Landhelgisgæslan lítur málið alvarlegum augum enda er brottkast með
öllu ólíðandi þar sem um er að ræða grófa aðför að sameiginlegri auðlind okkar
Íslendinga.