Grindhvalurinn aflífaður að beiðni dýralæknis

26. ágúst, 2019

Séraðgerða- og sprengjueyðingarsvið Landhelgisgæslunnar kallað út.

26.8.2019 Kl: 18:10

Frá því í morgun hafa björgunarsveitarmenn og aðrir
viðbragðsaðilar unnið að björgun grindhvals sem rak að landi í Káravík við
Seltjarnarnes. Eftir nokkurra klukkustunda björgunaraðgerðir var ljóst að mjög
hafði dregið af hvalnum og var það mat dýralæknis Matvælastofnunar að
nauðsynlegt væri að binda enda á þjáningar dýrsins.

 Lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu fór þess á leit við Landhelgisgæslu Íslands að séraðgerða-
og sprengjueyðingarsvið LHG yrði kallað út með viðeigandi búnað. Að beiðni
dýralæknis MAST var dýrið aflífað á sjötta tímanum. Í framhaldinu var dýrinu
sökkt.