Landhelgisgæslunni barst neyðarkall frá skipverjunum laust eftir miðnætti.
10.9.2019 Kl: 06:33
Klukkan 00:12 barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar
neyðarkall frá 12 metra handfærabát sem var strandaður rétt utan við Skála á
sunnanverðu Langanesi. Tveir menn voru um borð. Þyrla Landhelgisgæslunnar var
þegar send á staðin ásamt björgunarbátum frá Þórshöfn og Bakkafirði og
nærstöddum skipum. Þá voru björgunarsveitir frá Raufarhöfn, Þórshöfn og Húsavík
sendar landleiðina á vettvang.
Um kl.0120 kom fiskibátur á svæðið en hann gat ekki athafnað
sig á svæðinu. Þá var ágætis veður á svæðinu, bjart en nokkur sjór.
Björgunarbátur frá Bakkafirði kom á staðin um kl.0230 en
ekki var talið ráðlegt að reyna björgun frá sjó sökum sjólags. Þá voru aðstæður
til björgunar frá landi ekki góðar sökum aðstæðna en strandstaður var undir
bjargi. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-EIR kom á vettvang um kl.0235 og rúmu korteri síðar var búið að bjarga báðum mönnunum um borð í þyrluna.
Aðstæður á vettvangi verða skoðað betur við birtingu með
tilliti til björgunar á bátnum.