Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst að nýju

20. september, 2019

Flugsveitin kemur til landsins með sex F-35 orrustuþotur.

20.9.2019 Kl: 15:25

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst að nýju með komu flugsveitar ítalska flughersins til
Íslands í næstu viku. Um 140 liðsmenn ítalska
flughersins taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð
NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kemur til landsins með sex F-35 orrustuþotur.

Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á
Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 26.
september til 4. október. Loftrýmisgæslan verður í samræmi við
loftrýmisáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland og fyrirkomulagið verður
með sama hætti og verið hefur.

Flugsveitin verður með aðsetur á öryggissvæðinu
á Keflavíkurflugvelli en þetta er í annað sinn á
þessu ári sem ítalski flugherinn er hér á landi við loftrýmisgæslu. Gert er ráð fyrir að verkefninu ljúki fyrir lok
október. 

Landhelgisgæsla Íslands annast verkefnið í samvinnu við
Isavia.