Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst að nýju með komu norska flughersins.
17.2.2020 Kl: 12:02
Loftrýmisgæsla
Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst að nýju með komu norska flughersins.
Um
130 liðsmenn norska flughersins taka þátt í verkefninu og til viðbótar
starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations
Center). Flugsveitin kemur til landsins með fjórar F-35 orrustuþotur.
Gert
er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á
tímabilinu 20. til 29. febrúar. Loftrýmisgæslan verður í samræmi við
loftrýmisáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland og fyrirkomulagið verður
með sama hætti og áður.
Flugsveitin
verður með aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Gert er ráð fyrir að
verkefninu ljúki fyrir lok mars.
Landhelgisgæsla
Íslands annast verkefnið í samvinnu við Isavia.