Verkefnin fjölbreytt sem endranær.
10.3.2020 Kl: 15:03
Varðskipin Þór og Týr hafa til skiptis sinnt reglubundnu eftirliti á hafinu umhverfis Ísland á undanförnum vikum eins og venjulega.
Verkefnin eru ætíð afar fjölbreytt og samanstanda af æfingum, útköllum, viðhaldi, eftirliti og almennri löggæslu á hafinu, svo eitthvað sé nefnt.
Ferð varðskipsins Þórs í febrúar var vel skrásett og myndavélin aldrei langt undan. Meðfylgjandi myndir gefa innsýn inn í daglegt líf þeirra sem skipa áhafnir varðskipanna.
Á þeim má sjá þegar áhöfnin æfði reykköfun í lestinni, skipstjórnarmenn voru þjálfaðir á dráttarspil skipsins, fjöldabjörgunarbryggja var prófuð, unnið var við öldumælisdufl undan Drangsnesi og viðhald fór fram í aðalvél.
Skipstjórnarmennirnir voru einbeittir á svip þegar þjálfun á dráttarspili skipsins fór fram.Varðskipið Þór
Friðrik Höskuldsson, Einar H. Valsson og Einar Ingi Reynisson að störfum.
Fjöldabjörgunarbryggja prófuð á Ísafirði.
Bryggjan á Ísafirði.
Páll Geirdal, skipherra, í Reykjavík. Ljósmynd: Árni Sæberg.
Reykköfun æfð.
Tryggvi Ólafsson og Einar Hansen, vélstjórar, ráða ráðum sínum í vélarúmi Þórs.
Unnið að viðhaldi.
Næturæfing með þyrlusveit Landhelgisgæslunnar.
Unnið að öldumælisdufli undan Drangsnesi.