Varðskipið er væntanlegt vestur á firði í fyrramálið.
16.3.2020 Kl: 20:55
Varðskipið Týr er nú á leið til
Vestfjarða en þar er í gildi hættustig vegna snjóflóða á Flateyri og
Patreksfirði. Á níunda tímanum í kvöld var skipið statt á Breiðafirði. Þar er
NA-stormur og 6-8 metra ölduhæð eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi. Samkvæmt
Thorben Lund, skipherra á Tý, má búast við því að töluvert bæti í vind og
sjó eftir því sem vestar dregur í nótt.
Á vef Veðurstofunnar segir að búið sé
að rýma íbúðarhús við Ólafstún á Flateyri og nokkur önnur hús ofarlega í bænum
og tvö íbúðarhús við Urðargötu á Patreksfirði. Spáð er NA-hríð fram á
miðvikudag. Gert er ráð fyrir að varðskipið Týr verði komið vestur á firði
í fyrramálið.
Varðskipið Týr á leið til Vestfjarða
Samkvæmt Thorben Lund, skipherra á Tý, má búast við því að töluvert bæti í vind og sjó eftir því sem vestar dregur í nótt. Mynd: Kristinn Ómar Jóhannsson.