Varðskipið Týr kom til Önundarfjarðar í morgun.
17.3.2020 Kl: 10:04
Varðskipið Týr kom til Önundarfjarðar á áttunda tímanum morgun. Þar hefur verið lýst yfir hættustigi vegna snjóflóðahættu. Varðskipið verður til taks á svæðinu meðan óvissuástand ríkir. Samkvæmt vef Veðurstofu Íslands var ákveðið að rýma íbúðarhús við Ólafstún á Flateyri og nokkur önnur hús ofarlega í bænum, tvö íbúðarhús við Urðargötu á Patreksfirði og nokkur atvinnuhús við Seljalandsveg á Ísafirði.
Um borð í varðskipinu gengur lífið sinn vanagang og venju samkvæmt flögguðu varðskipsmenn íslenska fánanum í Önundarfirði í morgun.
Flaggað
Týr í Önundarfirði.
Mynd tekin úr brú varðskipsins í morgun.Varðskipið kom til Önundarfjarðar á áttunda tímanum.
Þrír úr áhöfninni fyrir brottför.