Hylkjunum er ætlað að auðvelda sjúkraflutninga vegna COVID-19 og draga úr smithættu.
3.4.2020 Kl: 16:49
TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, lenti laust
fyrir klukkan fjögur á Gardermoen flugvelli í Osló og sótti tvö hylki sem eru
mikilvæg við sjúkraflutninga COVID-19 smitaða. Annað hylkið fer á Landspítala og hitt á sjúkrahúsið á Akureyri. Viðbragðsaðilar á borð við Landhelgisgæsluna,
slökkvilið og Mýflug geta nýtt sér hylkin ef flytja þarf smitaða á sjúkrahús.
Hylkjunum er ætlað að auðvelda sjúkraflutninga vegna COVID-19 og draga úr
smithættu.
Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra óskaði eftir því við
Landhelgisgæsluna að áhöfnin á TF-SIF myndi annast flutninginn á hylkjunum frá
Noregi til Íslands. TF-SIF tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli í hádeginu og er
væntanleg aftur til landsins í kvöld.
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir
gott að Landhelgisgæslan geti lagt hönd á plóg við að koma búnaðinum til
landsins. „Það er gott að Landhelgisgæslan geti orðið að liði og nýtt TF-SIF
til þessa verkefnis. Ferðin til Osló undirstrikar mikilvægi þess að þjóðin eigi
flugvél sem getur nýst þegar flugsamgöngur liggja að mestu niðri og þörf er á
að koma neyðarbúnaði hratt og örugglega til landsins. “
Hylkin sem TF-SIF sótti til Noregs líta svona út.
Hluti áhafnarinnar á TF-SIF á Gardermoen flugvelli.