Þyrlusveitin leitaði í nágrenni Drangjökuls.
9.4.2020 Kl: 12:54
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar leitaði tveggja
fjórhjólamanna við Drangjökul eftir miðnætti í nótt. Þegar æfingu þyrlusveitar
og áhafnar varðskipsins Þórs var ný lokið í Ísafjarðardjúpi barst beiðni frá
fjarskiptamiðstöð Ríkislögreglustjóra um að þyrla Landhelgisgæslunnar færi til
leitar að fjórhjólamönnunum sem áttu að hafa farið frá Steingrímsfjarðarheiði í
átt að Drangajökli, fyrr um daginn. Björgunarsveitir á vegum
Slysavarnarfélagsins Landsbjargar voru einnig kallaðar út til leitar.
Flogið var frá Ísafirði yfir Snæfjöll, inn Hrafnsfjörð yfir Skorarheiði og niður
í Furufjörð og inn í Reykjafjörð. Leitað var á Fossadalsheiði, ofan í
Bjarnarfjörð, inn að Drangajökli og til suðausturs um heiðina. Aðstæður til
leitar voru góðar með nætursjónaukum sem alla jafna eru notaðir við leit sem
þessa í myrkri.
Eftir tæplega klukkustundar
leit var upplýst að mennirnir væru fundnir og hélt þyrla Landhelgisgæslunnar þá
aftur til Reykjavíkur.
Skjáskot