Áhöfnin á varðskipinu Þór bjargaði hval úr veiðarfærum fiskibáts

22. apríl, 2020

Áhöfnin á Þór hóf björgunarstörf í samráði við MAST þegar á staðinn var komið.

22.4.2020 Kl: 15:22

Áhöfninni á varðskipinu Þór tókst
að bjarga hval sem festist í veiðarfærum fiskibáts suður af Langanesi í morgun.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning um málið á ellefta tímanum og
var Matvælastofnun strax gert viðvart. Varðskipið Þór, sem var í grenndinni,
var kallað út og sent á vettvang. 

Áhöfnin á Þór hóf björgunarstörf í samráði
við MAST þegar á staðinn var komið. Skömmu siðar tókst að losa hvalinn úr
veiðarfærum fiskibátsins. Eftir að hvalurinn var laus fylgdi áhöfnin honum
eftir á léttbát til að ganga úr skugga um velferð dýrsins. 

Þegar öll veiðarfæri
voru aftur komin um borð í fiskibátinn og ljóst að ekkert varð eftir á hvalnum,
gat áhöfn Þórs haldið aftur um borð í varðskipið. Hvalnum virtist ekki verða meint af og var frelsinu feginn.

Hnúfubaki bjargað úr veiðarfærum

Mynd-hvalurÁhöfnin á Þór losaði hvalinn.Nota1TF-SIF flaug yfir og áhöfnin tók þessa mynd þegar verið var að bjarga hvalnum.Nota3Varðskipið Þór við Langanes