Áhöfnin á TF-EIR fann mann sem leitað var að í Skálavík

19. júní, 2020

Hitamyndavél þyrlunnar lék stórt hlutverk

19.6.2020 Kl: 13:30

Hitamyndavélin um borð í TF-EIR, þyrlu Landhelgisgæslunnar,
skipti sköpum þegar áhöfn þyrlunnar fann göngumann í sjálfheldu í
Kroppstaðahorni í Skálavík í morgun. Björgunarsveitir, lögregla, áhöfnin á
varðskipinu Þór auk þyrlusveitarinnar höfðu leitað mannsins frá því í gærkvöld
þegar hann fannst með myndavélinni. Erfitt reyndist að sjá manninn með berum
augum.

Lögreglan á Vestfjörðum óskaði eftir aðkomu áhafnar varðskipsins Þórs, sem var statt í 28 sjómílna fjarlægð frá Skálavík, og
þyrlusveitar laust eftir klukkan 23 í gærkvöld. Þyrlan hóf leit á svæðinu
klukkan 00:45 og varðskipið Þór sigldi grunnt meðfram ströndinni frá Galtavita
og alla leið að Bolungarvík og svo til baka í Skálavík þar sem leitað var í
hlíðinni.

Laust fyrir klukkan 6:00 fann áhöfnin á TF-EIR manninn í
klettum í Kroppstaðahorni. Hann var hífður upp í þyrluna og flogið með hann á
Ísafjörð. Meðfylgjandi myndband sýnir hvernig björgunaraðgerðum var háttað í
Skálavík í morgun.

TF-EIR hífir mann í Skálavík