Fyrsta erlenda skútan sem kemur til landsins eftir að landamæraskimun hófst í vikunni lagðist að bryggju í Vestmannaeyjum í dag.
19.6.2020 Kl: 16:03
Fyrsta erlenda skútan sem kemur til landsins eftir að landamæraskimun hófst í
vikunni lagðist að bryggju í Vestmannaeyjum í dag. Skútan kom upp í kerfum
Landhelgisgæslunnar í morgun en þá höfðu skipverjarnir um borð ekki sent
upplýsingar um sig til Landhelgisgæslunnar eins og kveðið er á um. Varðstjórar
stjórnstöðvar náðu fjarskiptasambandi við skútuna eftir nokkrar tilraunir.
Um borð reyndust vera tveir sænskir eldri borgarar að sem
höfðu lagt af stað frá Svíþjóð 3. júní. Landhelgisgæslan gerði þeim grein fyrir
þeim sóttvarnarráðstöfunum sem í gildi eru og kom málinu til
heilbrigðisyfirvalda og tollgæslunnar í Vestmannaeyjum. Ekki var talin þörf á
að skima eða senda fólkið í sóttkví þar sem það hafði verið í 16 daga einangrun
á sjó.