Áhöfnin á TF-SIF kom auga á bát með tæpt tonn af fíkniefnum

11. ágúst, 2020

-Áhöfnin á TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, hefur undanfarnar vikur sinnt landamæraeftirliti á Miðjarðarhafi á vegum Frontex, Landamærastofnunar Evrópu.

11.8.2020 Kl: 13:11

Spænska lögreglan, Guardia Civil, í samvinnu við
Landhelgisgæslu Íslands handtók fjóra og gerði 963 kíló af hassi upptæk á
dögunum. Áhöfnin á TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, var við
landamæraeftirlit á vestanverðu Miðjarðarhafi þegar hún kom auga á hraðbát með
torkennilegan varning um borð. Höfuðstöðvum lögreglunnar í Madrid var þegar gert
viðvart og á meðan fylgdi TF-SIF bátnum eftir inn á Gíbraltarsund í ríflega tvo
tíma. Þar mætti spænska lögreglan á hraðbát og handtók fjóra smyglara og gerði
tæpt tonn af hassi upptækt.

Samkvæmt fréttatilkynningu spænsku lögreglunnar voru
smyglararnir frá Marokkó, Belgíu og Frakklandi.

Áhöfnin á TF-SIF hefur frá júnímánuði haft aðsetur á Malaga
á Spáni og sinnt landamæraeftirliti á Miðjarðarhafi á Frontex. Ferðin hefur
verið var árangursrík. Áhöfnin hefur tekið þátt í 41 verkefni og stuðlað að
björgun 78 flóttamanna og komið upp um fjölmarga smyglara sem reynt hafa að
flytja fíkniefni til Spánar.

TF-SIF lagði af stað til Íslands frá Spáni í dag og er væntanleg
til landsins síðar í vikunni.

TF-SIF kemur auga á smyglara

Björgun flóttamanna

EftirforBátnum var fylgt eftir af áhöfninni á TF-SIF í ríflega tvo tíma áður en lögreglan mennirnir voru handteknir.

Smyglarar-handteknirGuardia Civil fer um borð í bátinn. Tæpt tonn af hassi var gert upptækt.Flottamenn-Midjardarhaf-2020Áhöfnin á TF-SIF stuðlaði að björgun 78 flóttamanna á Miðjarðarhafi í sumar.FikniefnabaturÁhöfnin á TF-SIF kom auga á torkennilega pakka um borð í bátnum.