Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins að hefjast hér á landi.
19.8.2021 Kl: 10:48
Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að
hefjast með komu flugsveitar pólska flughersins, sem tekur þátt í verkefninu á
Íslandi í fyrsta sinn.
Alls taka 140 liðsmenn pólska flughersins þátt í verkefninu
ásamt starfsmönnum í stjórnstöðvum Atlantshafsbandalagsins í Uedem, Þýskalandi
(Combined Air Operations Center) og á öryggissvæðinu á
Keflavíkurflugvelli. Flugsveitin kemur
til landsins í dag, fimmtudaginn 19. ágúst, með fjórar F-16 orrustuþotur og
hefur aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
Með fyrirvara um veður, er gert ráð fyrir aðflugsæfingum að
varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 23. ágúst til 3.
september.
Framkvæmd verkefnisins verður með sama fyrirkomulagi og
fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir
Ísland, en í ár eru 60 ár liðin frá því að loftrýmisgæsla bandalagsins hófst.
Eins og með annan erlendan liðsafla sem hér á landi dvelur
tímabundið þá er í gildi viðbúnaður vegna sóttvarna meðan á dvöl
pólskuflugsveitarinnar stendur og er framkvæmdin unnin í samvinnu við embætti
landlæknis og aðra er að sóttvörnum koma hér á landi.
Landhelgisgæsla Íslands annast í umboði utanríkisráðuneytisins
framkvæmd verkefnisins í samvinnu við Isavia. Ráðgert er að loftrýmisgæslunni
ljúki í lok september.