Komu til landsins í kvöld
23.8.2021 Kl: 22:30
Þrjár
flugvélar bandaríska flughersins af gerðinni Northrop B-2 Spirit komu hingað
til lands í kvöld og munu hafa tímabundið aðsetur á öryggissvæðinu á
Keflavíkurflugvelli næstu daga vegna æfinga. Vélarnar koma hingað til lands frá
Bandaríkjunum og alls taka 200 liðsmenn flughersins þátt í verkefninu.
Með
æfingunum gefst bandarísku flugsveitinni tækifæri til að kynnast staðháttum á
Norður-Atlantshafi, þar með talið hér á landi og æfa með öðrum þjóðum
Atlantshafsbandalagsins. Samskonar æfingar fara fram reglulega í Evrópu, síðast
hér við land í mars.
Eins
og með annan erlendan liðsafla sem hér á landi dvelur tímabundið þá er í gildi
viðbúnaður vegna sóttvarna meðan á dvöl bandarísku flugsveitarinnar stendur og
er framkvæmdin unnin í samvinnu við embætti landlæknis og aðra er að sóttvörnum
koma hér á landi.