Landhelgisgæsla Íslands tekur nú þátt í nýsköpunarverkefninu AI-ARC.
29.9.2021 Kl: 9:51
Landhelgisgæsla Íslands tekur nú þátt í nýsköpunarverkefninu
AI-ARC. Um er að ræða alþjóðlegt verkefni sem fjármagnað er af nýsköpunarsjóði
Evrópusambandsins, Horizon2020. Verkefnið miðar að því að auka sjálfvirkni við
eftirlit, löggæslu, leit og björgun á norðurslóðum með gagnasöfnun og
gervigreind. Ætlunin er að útbúa nýstárlegt, öflugt, skilvirkt og notendavænt
kerfi sem aflar gagna um skipaumferð og sjótengda starfsemi. Því er ætlað að
auðvelda greiningu á hvers kyns frávikum, auðvelda áhættugreiningu og leiða til
samþættra upplýsinga um skipaumferð.
Markmiðið með verkefninu er að útbúa verkfæri fyrir
löggæslu- og öryggisstofnana sem auðveldar ákvarðanatöku og eykur öryggi
sjófarenda. Landhelgisgæslunni er ætlað að greina siglingar og sjótengda starfsemi
á norðurslóðum. Þá er Landhelgisgæslunni einnig ætlað að leggja mat á virkni
þess kerfis sem verkefnið leiðir af sér. Verkefnið stendur í hálft þriðja ár.
Á upphafsfundi þeirra sem standa að verkefninu kynnti
Landhelgisgæslan áskoranir við löggæslu, umhverfisvöktun, leit og björgun á
hafinu við Ísland og sýn stofnunarinnar á eftirlitsaðferðum framtíðarinnar sem
munu að einhverju leyti byggjast á gervigreind.
Landhelgisgæslan er stolt að taka þátt í umbótaverkefni sem
þessu sem miðar að því að auka öryggi sjófarenda með notkun á nýjustu tækni.
Markmiðið með verkefninu er að útbúa verkfæri fyrir löggæslu- og öryggisstofnana sem auðveldar ákvarðanatöku og eykur öryggi sjófarenda.