Áhöfnin á TF-GRO kom rafstöð á Straumnesfjalli aftur af stað.
11.1.2022 Kl: 14:54
Á æfingu áhafnarinnar á TF-GRO í morgun var flogið vestur
að Straumnesfjalli. Þar var svokallaður AIS sendir, sem sendir stjórnstöð
Landhelgisgæslunnar mikilvægar upplýsingar um staðsetningu skipa í
Ísafjarðardjúpi og út af Vestfjörðum, orðinn óvirkur vegna straumleysis.
Áhöfnin á TF-GRO fékk þær upplýsingar frá tæknimönnum Neyðarlínunnar að
líklegasta skýringin væri sú að rafstöð á fjallinu væri orðin olíulaus og mikilvægt
að koma henni aftur í gang. Þyrlunni var lent á fjallinu rétt við endurvarpann
og fór hluti áhafnarinnar að stöðinni til að kanna ástand hennar.
Olíu var dælt
af tunnum yfir á olíutank rafstöðvarinnar og skömmu síðar fengust þær upplýsingar að sendirinn væri kominn aftur í samt lag.
Áhöfnin tók þá aftur á loft og
hélt æfingunni áfram.
Hrannar Sigurðsson, spilmaður og flugvirki, dælir olíu af tunnum yfir á rafstöðina.
AIS sendirinn á Straumnesfjalli.
TF-GRO á Straumnesfjalli í morgun.
Hrannar dælir.