Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst í vikunni með komu flugsveitar portúgalska flughersins hingað til lands.
24.1.2022 Kl: 11:38
Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins
við Ísland hefst í vikunni með komu flugsveitar portúgalska flughersins hingað til lands. Þetta er í
annað sinn sem Portúgalar taka þátt í verkefninu hér á landi en síðast annaðist
portúgalski flugherinn loftrýmisgæslu á Íslandi fyrir áratug. Flugsveitin
kemur til landsins með fjórar F-16 orrustuþotur og um 85 liðsmenn sem hafa aðsetur
á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
Gert er ráð fyrir að portúgalska flugsveitin geri
aðflugsæfingar að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 31.
janúar til 7. febrúar en æfingarnar taka mið af veðri.
Portúgalski flugherinn tekur þátt í verkefninu ásamt
starfsmönnum í stjórnstöðvum Atlantshafsbandalagsins í Uedem, Þýskalandi
(Combined Air Operations Center) og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
Framkvæmd verkefnisins er með sama hætti og áður og í
samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland.
Eins og með annan erlendan liðsafla sem hér á landi dvelur
tímabundið þá er í gildi viðbúnaður vegna sóttvarna meðan á dvöl portúgölsku flugsveitarinnar
stendur og er framkvæmdin unnin í samvinnu við embætti landlæknis og aðra er að
sóttvörnum koma hér á landi.
Landhelgisgæsla Íslands annast framkvæmd verkefnisins í
umboði utanríkisráðuneytisins og í samvinnu við Isavia.
Ráðgert er að loftrýmisgæslunni ljúki í lok mars.