Aðflugsæfingar dagana 26. apríl – 6. maí.
24.4.2022 Kl: 21:36
Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að hefjast með komu flugsveitar ítalska flughersins. Þetta er í sjötta sinn sem Ítalir
leggja Atlantshafsbandalaginu til flugsveit vegna verkefnisins en flugsveit Ítala
var seinast hér á landi fyrir tveimur árum. Flugsveitin annast loftrýmisgæsluna
ásamt starfsmönnum í stjórnstöðvum Atlantshafsbandalagsins í Uedem, Þýskalandi
(Combined Air Operations Center) og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli,
(NATO Control and Reporting Center-Keflavik).
Ítalska flugsveitin kemur til landsins á morgun, mánudaginn
25. apríl, með fjórar F-35 orrustuþotur og 135 liðsmenn. Gert er ráð fyrir
aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu frá 26.
apríl til 6. maí. Framkvæmd verkefnisins er með sama fyrirkomulagi og fyrri ár
og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland.
Flugsveitin hefur aðsetur á öryggissvæðinu á
Keflavíkurflugvelli en þar dvelja einnig flugsveitir bandaríska sjóhersins við
kafbátaeftirlit. Landhelgisgæsla Íslands annast framkvæmd verkefnisins í umboði
utanríkisráðuneytisins og í samvinnu við Isavia. Loftrýmisgæslunni lýkur í lok
júní.
Ítalska flugsveitin kemur hingað til lands með fjórar F-35 orrustuþotur.
F-35 flugvél ítalska flughersins hér á landi árið 2020.