Áhöfnin réði niðurlögum eldsins
23.8.2022 Kl: 10:58
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og
sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Vestfjörðum voru
kallaðar út í gærkvöld eftir að eldur kom upp í vélarrúmi togbáts sem staddur var
úti fyrir Patreksfirði.
Áhöfn togbátsins hafði samband
við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar laust fyrir klukkan hálf tíu og var áhöfn
þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar í stað kölluð út ásamt slökkviliðsmönnum
frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins sem fóru með þyrlunni
vestur.
Tíu voru um borð í
togbátnum. Áhöfninni tókst að loka vélarrúminu og rúmum hálftíma eftir
að aðstoðarbeiðnin barst var búið að reykræsta bátinn. Þyrla
Landhelgisgæslunnar sneri þá við en björgunarskip Slysavarnafélagsins
Landsbjargar hélt áleiðis að togbátnum sem sigldi fyrir eigin vélarafli til hafnar.