Landhelgisgæslan hefur leitt skipulagningu æfingarinnar en æfingin hófst á mánudag og lýkur á morgun.
31.8.2022 Kl: 16:14
Í vikunni hefur
umfangsmikil björgunaræfing farið fram um borð í farþegaskipinu MV Quest undan
ströndum Longyearbyen á Svalbarða. Æfingin er hluti af samstarfsverkefninu
ARCSAR sem Landhelgisgæslan tekur
þátt í ásamt öðrum björgunaraðilum, háskólum og einkafyrirtækjum.
Landhelgisgæslan
hefur leitt skipulagningu æfingarinnar en æfingin hófst á mánudag og lýkur á
morgun.
ARCSAR er
verkefni sem Evrópusambandið fjármagnar og er ætlað að bæta öryggis og
viðbúnaðarkerfið á norðurslóðum með rannsóknum og innleiðingu nýjunga.
Á
æfingunni er farið yfir vinnubrögð og starfsaðferðir skemmtiferðaskipa. Einnig
eru viðbrögð við slysi um borð í farþegaskipi æfð en æfingunni er ætlað að auka
lífslíkur þeirra sem um borð eru með samhæfðum aðgerðum þeirra sem koma að
björgunarstörfum á norðurslóðum.
Um borð í
MV Quest gefst einstakt tækifæri til að stilla saman strengi viðbragðsaðila og
útgerða skemmtiferðaskipa með samræmdum aðgerðum. Fulltrúum þessara fjölbreyttu
samstarfsaðila gefst afar mikilvægt tækifæri til að læra hver af öðrum og
tryggja fumlaus vinnubrögð ef neyðarástand skapast um borð í farþegaskipi á
norðurslóðum. Að æfingunni koma einingar frá norsku strandgæslunni,
björgunarstjórnstöðvum í Noregi, fulltrúar sýslumannsins á Svalbarða, áhöfn MV
Quest og fjöldi annarra fyrirtækja og stofnana.
Um borð í
farþegaskipinu eru 25 í áhöfn auk rúmlega 50 þátttakenda. Fulltrúar
Landhelgisgæslunnar eru fjórir, Auðunn Kristinsson, Hekla Jósepsdóttir, Snorre
Greil og Anton Örn Rúnarsson.
Frá æfingunni sem fer fram á Svalbarða.