
Tilkynningar til sjófarenda, útgáfa 2 – 2026
27. febrúar 2026
Í gær, fimmtudaginn 26.febrúar voru Tilkynningar til sjófarenda sendar áskrifendum og birtar á vef Landhelgisgæslu Íslan...
25.10.2022 Kl: 13:38
Varðskipið Þór kom með flutningaskipið EF AVA til Reykjavíkur um klukkan 9 í morgun. Dráttarbátar Faxaflóahafna drógu skipið síðasta spölinn til hafnar.
Flutningaskipið varð vélarvana í kjölfar sprengingar í vélarúmi þess á öðrum tímanum í gær. Varðskipið Þór var komið að skipinu um kvöldmatarleytið í gær og áhöfn Þórs skaut taug á milli skipanna og tók flutningaskipið í tog að því búnu.Á meðfylgjandi myndbandi má sjá hvernig aðgerðir fóru fram um borð í varðskipinu.
Myndir: Sævar Már Magnússon og Árni Sæberg.