Neðansjávarfarið er útbúið sérstakri hliðarhljóðsjá sem nýtist við athugun sjávarbotnsins.
6.12.2022 Kl: 9:18
Áhöfnin á
varðskipinu Þór heldur leit áfram í dag að skipverjanum sem féll útbyrðis á
laugardag úti fyrir Garðskaga. Leitað verður með neðansjávari frá Teledyne
Gavia á svæðinu þar sem talið er að maðurinn hafi fallið fyrir borð.
Neðansjávarfarið er útbúið sérstakri hliðarhljóðsjá auk myndavélar sem nýtist
við athugun sjávarbotnsins.
Sérfræðingur
frá Teledyne Gavia fór um borð í Þór í morgun ásamt sérfræðingum frá
sjómælinga- og siglingaöryggisdeild Landhelgisgæslunnar til að aðstoða við
leitina. Þyrla Landhelgisgæslunnar verður einnig nýtt til leitar í dag. Leit
hefst í birtingu.
Meðfylgjandi eru myndir frá varðskipinu Þór sem teknar
voru í gær ásamt myndum af neðansjávarfarinu.