Áhöfnin á Freyju færði farm Wilson Skaw
2.5.2023 Kl: 10:12
Áhöfnin á varðskipinu Freyju hefur lokið störfum í Steingrímsfirði en þar hefur áhöfn skipsins verið undanfarna daga og unnið að björgun flutningaskipsins Wilson Skaw sem strandaði í Húnaflóa fyrir tæpum tveimur vikum. Gert er ráð fyrir því að Freyja fari af svæðinu síðar í dag.Áhöfn Freyju lauk við að færa farm skipsins í gær. Verkið hófst á laugardag og tók skemmri tíma en áætlað var. Færanlegir kranar á hlið skipsins voru nýttir til verksins og reyndust sérlega vel. Þá var einnig soðið fyrir brunnop í afturlest.Verkefnið er nú í höndum björgunarfélags sem starfar á vegum eigenda skipsins. Landhelgisgæslan gerir ráð fyrir að skipið verði dregið úr Steingrímsfirði á næstu dögum. Ljósmyndir: Guðmundur St. Valdimarsson.
Einar Valsson, skipherra, stýrir aðgerðum um borð í Freyju.
Freyja siglir frá Wilson Skaw.
Búið að færa farm skipsins til.
Búnaður fluttur á milli skipanna.