Þyrlusveit í þrjú útköll á undanförnum sólarhring

7. júní, 2023

Tvö útköll út á sjó

7.6.2023 Kl: 11:12

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar
hefur á undanförnum sólarhring annast þrjú útköll, þar af tvö út á sjó.

Á þriðja tímanum í nótt hafði
skipstjóri togara samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar vegna bráðra
veikinda um borð. Togarinn var þá staddur um 14 sjómílur út af Búðarhorni á
Vestfjörðum og var áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar kölluð út. Hífingar gengu
vel og skipverjinn var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík.

Í gær var þyrlan tvívegis kölluð
út. Í fyrra skiptið vegna göngukonu sem hrasaði og slasaðist á fæti á
Breiðamerkurjökli. Konan var sótt og flutt á Landspítalann. Síðdegis í gær
óskaði skipstjóri togara eftir aðstoð þyrlusveitar vegna slyss sem varð um borð
en skipið var þá statt á miðjum Faxaflóa. Áhöfnin á TF-GNA, þyrlu
Landhelgisgæslunnar, var kölluð út á mesta forgangi. Skipverjinn var hífður um
borð í þyrluna og fluttur á sjúkrahús í Reykjavík.