
Tilkynningar til sjófarenda, útgáfa 2 – 2026
27. febrúar 2026
Í gær, fimmtudaginn 26.febrúar voru Tilkynningar til sjófarenda sendar áskrifendum og birtar á vef Landhelgisgæslu Íslan...

3.8.2023 Kl: 16:42
Á dögunum fór áhöfnin á varðskipinu Þór í eftirlit í nokkur íslensk uppsjávarskip sem voru á makrílveiðum djúpt suðaustur af landinu. Á þessum veiðum er algengt að nokkur skip séu á svipuðum slóðum og vinni vel saman.Á þessum myndum sem eftirlitsmenn Landhelgisgæslunnar tóku um borð í Jónu Eðvalds SF-200 má sjá áhöfnina um borð að störfum. Tekin var prufa af aflanum og reyndist allt vera samkvæmt bókinni. Nokkuð var farið að draga úr veiðinni á svæðinu þegar Landhelgisgæslan var á staðnum og voru skipin farin að hefja leit á norðvestur stefnu þegar Þór yfirgaf svæðið.
Tekin var prufa af aflanum og reyndist allt vera samkvæmt bókinni.