Fundurinn þótti árangursríkur.
16.5.2024 Kl: 13:07
Sjómælinga- og
siglingaöryggisdeild LHG hélt á dögunum fund vinnuhóps norrænna
sjókortagerðarsérfræðinga, Nordic Chart Production Expert Group (NCPEG).
Vinnuhópurinn er hluti af
starfi Nordic Hydrographic Commission (NHC) sem er svæðisnefnd Alþjóða
sjómælingastofnunarinnar (IHO) á Norðurlöndunum.
Staðfundir sem þessi eru
haldnir annað hvert ár og eru afar mikilvægur samstarfsgrundvöllur fyrir
sjókortagerðarfólk, ekki síst fyrir minni sjómælingastofnanir eins þá íslensku.
Fundurinn þótti árangursríkur
og starf vinnuhópsins heldur áfram af krafti.
Fundurinn þótti árangursríkur.