Æfingin gekk vel
26.6.2024 Kl: 11:04
Áhöfnin á varðskipinu Þór hélt í vikunni æfingu með áhöfn franska farþegaskipsins Le Commandant Charcot.
Æfingin gekk afar vel og fólst í að koma taug á milli skipanna og draga franska skipið í um hálfa klukkustund. Varðskipið Þór stóðst þessa þolraun vel og náði mest um 8 hnúta hraða með skipið í togi.
Æfingar sem þessar eru sérlega mikilvægar svo áhafnir beggja skipa séu sem best undirbúnar ef á reynir.
Farþegaskipið tekið í tog.
Línu skotið á milli skipanna.
Farþegaskipið Le Commandant Charcot.