Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar annaðist útkall djúpt norður af Vestfjörðum

3. ágúst, 2024

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar annaðist útkall, djúpt norður af Vestfjörðum, vegna veikinda um borð í skemmtiferðaskipi á Grænlandssundi snemma í morgun.

3.8.2024 Kl: 11:21

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar annaðist útkall, djúpt norður af Vestfjörðum, vegna veikinda um borð í skemmtiferðaskipi á Grænlandssundi snemma í morgun. Þyrlusveitin var kölluð út í nótt og tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli laust eftir klukkan fjögur og tók stefnuna á Ísafjörð þar sem fyllt var á eldsneytistanka þyrlunnar. Þaðan var flogið á haf út og á sjöunda tímanum í morgun var TF-GRO, þyrla Landhelgisgæslunnar, komin að skemmtiferðaskipinu. Töluverður vindur var á staðnum eða um 40 hnútar sem samsvarar rúmlega tuttugu metrum á sekúndu. Þá var éljagangur og um fjögurra til fimm metra ölduhæð.Áhöfn skemmtiferðaskipsins tók á móti tengilínu frá þyrlunni á þyrlupalli skipsins og fór sigmaður þyrlusveitarinnar um borð í skipið og undirbjó sjúklinginn fyrir hífingu um borð í þyrluna. Vel gekk að koma manninum um borð í þyrluna og var flogið með hann til aðhlynningar á Sjúkrahúsið á Akureyri. Áhöfnin á TF-GRO verður til taks á Akureyri til morguns og hin vaktin verður í viðbragðsstöðu í Reykjavík ef á þarf að halda.

Capture_1722684216601Kort af flugleiðinni.